Advertisement
Not a member of Pastebin yet?
Sign Up,
it unlocks many cool features!
- Áður en hafist er handa við að leysa dæmin hér að neðan getur verið gagnlegt að
- skoða sýnidæmi og skoða æfingar á http://codingbat.com/python og
- https://pynative.com. Prófið dæmin sem tekin eru í tíma auk sýnidæma í
- leiðarvísinum til að fá tilfinningu fyrir aðgerðum í Python.
- Hannið klasann Bankavidskipti utanum grunnþjónustu sem lítur að umsjón
- bankareikninga og þjónustuaðgerðir þeim tengdum. Klasinn á að innihalda amk. Þrjú
- föll sem skilgreinir þessa viðskiptaþjónustu; innsetning á reikning, úttekt af reikning
- og sækja stöðu reiknings. Bankareikningur sem viðskiptin heyra undir tilheyrir öðrum
- klasa, vistaður í skránni bankareikningur.py, sem þið hannið en ekki þarf að breyta
- upplýsingum í klasanum Bankareikningur. Klasinn Bankaviðskipti gerir síðan
- import á þessum klasa, sjá vísbendingu að neðan.
- Grunnmynd af beinagrind klasans ásamt hönnunar leiðbeiningum er að finna hér að
- neðan. Bætið við viðskiptaþjónustu fyrir framangreind föll. Að lokum prentar main
- fallið út innistöðu á reikningnum. Gott er að hugsa sér main fallið sem einskonar
- þjónustugátt fyrir bankaviðskipti sem gefur notandanum möguleika á að velja
- viðskiptaþjónustu eða ellegar loka gáttinni. Munið að hafa fastayrðingar (útskýringar)
- og að nota main fall ásamt try: & except: segðum þegar það á við.
- Vísbending. Hlaðið niður viðeigandi upplýsingum frá fyrirlestri_10.py (Prufa 66.),
- en heimaverkefnið byggir á tímaverkefni_10_2.py, sjá Piazza.
- Bónus verður gefinn fyrir að vista stöðu bankareiknings í gagnagrunni, sem
- notaður er við viðskiptin.
- Setjið inn PDF-skjal með lausn á einu dæmi á hverri síðu og munið eftir að merkja
- hvar hver lausn er í skjalinu þegar þið sendið það inn. Athugið að verkefni sem
- uppfylla ekki þessi skilyrði týnast í kerfnu og sama gildir um lausnir sem berast of
- seint.
- Athugið. Gerðar eru athugasemdir við uppbyggingu (t.d notkun á main falli),
- útskýringar (fastayrðingar), læsileika og villumeðhöndlun kóða í þessu verkefni.
- Hafið leiðbeiningar um kóðunarstíl í Python til hliðsjónar
- http://www.python.org/dev/peps/pep-0008/.
- Ekki nota skjáskot af kóða í skilum og setja þarf kóðann inn í .pdf skjal.
- Einungis útskrift frá keyrslu má vera í formi af skjáskoti og þá inn í .pdf
- skjalinu.
Advertisement
Add Comment
Please, Sign In to add comment
Advertisement